Hér munum við stikla á því helsta sem í boði er í þeirri ótrúlegu flóru efna til yfirborðsmeðhöndlunar frá EUKULA.
Hreinsiefni: Euku-clean sápa fyrir lakkað parket og harðparket, bæði til íblöndunar í skúringafötuna eða á spray brúsa sem úðast beint á gólfið. Ef þú ert með olíuborið parket þá erum við með næringaefni fyrir olíuborin gólf sem blandast við Euku-Clean sápuna. Euku Reiniger er öflugur hreinsir sem inniheldur appelsínu sýru sem vinnur kraftaverk á skítugum gólfum og einnig Euku- conditioner sem étur upp sveppamyndun í við og eyðir gráma. Síðan er allt þetta hefðbundna, allskyns þynnar, bón og bónleysar. Eins erum við með öfluga hreinsiklúta frá Ever Build sem virka vel til þess að hreinsa yfirborð af lakki, málingu, tjöru og öll önnur óhreinindi. Virkar frábærlega á hendurnar, ekkert sull efnið er í klútnum.
PU-lökkin: Þetta þekkir fólk á lyktinni, það er til sem einþátta eða tveggja þátta. Einþátta lakkið sem notað er beint úr dósinni er frekar þurrefnissnautt, gefur litla fyllingu og verður frekar plastlegt ef það er notað eingöngu það þarf yfirleitt 3 – 4 umferðir til þess að það gefi nægan styrk og fyllingu. Síðan eru tveggja þátta lökkin þar sem blanda þarf hvata og lakki saman, það er mun þurrefnisríkara og sterkara lakk sem gefur góða fyllingu dugar vel með 2 umferðum. Þetta lakk er oft notað sem grunnur undir umhverfisvæna lakkið.
Hvoru tveggja eru þetta solvent baseruð polyurethan lökk, það er að segja eitrið gufar upp og plastefnið polyurethan verður eftir sem tiltölulega skaðlaus filma.
PU tegundir: 450 (háglans eingöngu til í 10 ltr) 550 (glans), 551 (satin matt), 550 (herðir) Þynnirinn heitir V-25 og verkfæraþynnir V-29.
Til sem lagervara í 10 ltr,3 ltr og 1 ltr einingum
UA-lökkin: Þessi lökk eru af gamla skólanum, olíualkýð baserað lakk sem leggst afskaplega vel og dregur fram djúpan og fallegan lit í viðnum og myndar silkimjúka húð. Helsti gallin er hvað þau eru lengi að þorna, einnig er þessi lökk til sem íþróttalökk en þau lökk eru það sem landsliðið í handbolta vilja einna helst spila á því þau eru með íþróttagólfa Din staðli18032.
UA-tegundir: 490 (glans) og 491 (satin matt íþróttagólfalakk DIN 18032) 510 (glans), 511 (satin matt) og 512 (matt) þynnirinn heitir V-28 og verfæraþynnir V-29
Til sem lagervara í 10 ltr. einingum
Vatnsbaseraðu-lökkin: Þessi lakktegund á sér stutta sögu, hún kemur á markað fyrir um það bil 20 árum og minnti frekar á plastmálningu en lakk þar sem megin uppistaðan var akcryl plastefni og fældi það marga frá því að nota það, þar sem áferð og ending var léleg. En umhverfislakkið er framtíðin svo þróunin var virkilega hröð, því fyrir um 7 árum fara að koma á markað lökk sem voru 50% ackryl og 50 % polyurethan þannig að áferð og ending fór batnandi. Þessi lökk eru ýmsir menn að bjóða enn í dag, sérstaklega þar sem lökkin eru inn í svokölluðu fermetraverði (efni og vinna ). En í dag eru búin að vera á markaðnum 100 % polyurethan umhverfisvæn lökk síðastliðin 10 ár. Og hafa þau það langt umfram hin hefðbundnu polyurethan lökk að vera ekki bara áferða fallegri og lyktarminni, heldur er styrkleikinn ekki síðri. Nú undir það síðasta hafa komið lökk með UV vörn sem hindra sólarljósið í að upplita viðinn en þar sem þau eru frekar dýr höfum við kosið að selja sólarvörnina sérstaklega þegar við á sem er þá bætt út í hefðbundið lakk.
Strato tegundir: 461+herðir (satin matt), 462+herðir (matt), 463+herðir (ultra matt) Domocile (satin matt) Domocile (matt), fyllir 101 (vökvi), fyllir 110 (duft til að blanda í vatn) litir Eik, Beyki, Hlynur og fura.
Til sem lager vara í 5 og 10 ltr einingum
Gólfolía: Gólfolían fór að ryðja sér til rúms upp úr 1990 og í dag má segja að hún hafi 40 % markaðshlutdeild í yfirborðsmeðhöndlun, því oftar en ekki er verið að slípa upp gömul lökkuð gólf og setja olíu á viðinn. Olíugólfið hefur marga kosti umfram lakkaða gólfið eins og það að rispur eru ekki eins critiskar, gólfið er náttúrulegra og verður einfaldlega fallegra með tímanum, það svona einhvern veginn eldist með ábúendunum. Mjög áríðandi er samt að viðhalda gólfinu á réttan hátt, það á reyndar við um öll efnin, en sérstaklega er mikilvægt að viðhald sé reglulegt með olíugólfum.
Það eru einnig til hvítar olíur og olíur í mörgun litum ef fólk vill breyta til.
Bæsun: Litun á viðargólfi er skemmtilegur og líflegur kostur, á markaðnum er úrval efna til bæsunar. En stundum er betra heima setið því það er ekki sama hvað notað er. Það er grátlegt að horfa upp það hvað fólki er selt og jafnvel litlar sem engar upplýsingar um rétta notkun efna. Því það er ekki sama hvort verið er að bæsa borðplötu eða gólf.
Þægilegasta efnið til að bæsa gólf er olíubæs vegna þess að hann þornar hægt og tími gefst til þess að jafna áferðina sem best. Flest allar ljósar viðar tegundir þola það að litast, Síðan er því fylgt eftir annað hvort með lakki eða olíu. Athugið samt að olíubæs getur þurft allt að 72 tíma þurkktíma áður en lakk er sett yfir, en eins erum við með olíubæs sem þarf einungis 24 klst þornun áður en lakkað er yfir.