Um Okkur

Eftirfarandi upplýsingar eru til þess að uppfylla upplýsingaskyldu:

Parketbúðin ehf.

knt. 690609-1180

Lögheimilli: Vættaborgir 90,112 Reykjavík

Aðsetur: Smiðjuvegur 6,200 Kópavogur 

Sími: 567 7777

E-mail : arni@pm.is

 

Eigendur eru Friðrik Már Bergsveinsson og Árni Örn Bergsveinsson sem er framkvæmdastjóri verslunarinnar.  En með tilkomu Parketbúðarinnar rættist langþráður draumur Parketverktakans að geta nálgast öll hágæðaefni á einum stað í stað þess að eyða hálfum deginum í flakk á milli verslana. Það að vera með einkaumboð á einum traustustu merkjum sem völ er á frá leiðandi framleiðendum eins og EUKULA sem framleiðir hágæða lökk og olíur, LÄGLER einn fremsti framleiðandi parketslípivéla í heiminum ásamt því að vera með sandpappír frá STARCKE var grunnurinn lagður að sterkri samsetningu hágæða vara sem þurfa að vera til staðar ef vinna á vel og örugglega við parketslípun og yfirborðsmeðhöndlun. Við erum með breiða línu af parketi frá FB Hout (Holland) og PALO-DURO Collection (USA) ásamt því að selja breitt úrval parkets frá öðrum eins og PARADOR (Þýskaland), WEITZER (Austurríki) og TARKETT (Svíðþjóð).

Þú finnur ekki parket frá Asíu hjá okkur.

 

Einnig erum við með umboð fyrir NOVOTYR (Swiss) sem eru wax viðgerðasett og BEPO (Þýskaland) sem eru með sérhæfð verkfæri.

 

Það er von okkar að parketbúðin verði í framtíðinni sterkt sameiningatákn þeirra fjölda verktaka sem vinna við parket þannig að allir sitji við sama borð hvað varðar verð og þjónustu því það hefur færst í vöxt að ný efni koma fram nær daglega og sú flóra efna sem eru á markaðnum fyrir er orðin svo mikil að erfitt er jafnvel fyrir vanan parketmann að varast það slæma sem oftar en ekki lendir síðan á hinum almenna neytenda út í bæ.

 

Það er og verður yfirlýst stefna Parketbúðarinnar að hafa einungis góðar og traustar vörur á boðstólnum sem bæði verktakar og hinn almenni neytandi geta treyst á og á eins góðum verðum og mögulegt er, til þess að sporna við þeirri óheillaþróun að neytandinn sé að fá einhver lakari efni á gólfið sitt sem endast svo varla árið án þess að vera upplýstur um gæði þess.

 

Linkar á vefsíður helstu framleiðenda sem við seljum frá.

 

www.eukula.de Lökk og olíur frá Þýskalandi, einkaumboð á Íslandi

www.laegler.de Parketslípivélar frá Þýskalandi, einkaumboð á Íslandi

www.starcke.de Sandpappír frá Þýskalandi, einkaumboð á Íslandi

www.novoryt.com  Wax viðgerðaefni frá Swiss, einkaumboð á Íslandi

www.bepo-elektrowerkzeuge.de Verkfæri frá þýskalandi, einkaumboð á Íslandi

www.Parador.de  Parket frá Þýskalandi 

www.stauf.de Parketlím frá Þýskalandi

www.uzin.de Parketlím frá Þýskalandi

www.weitzer-parkett.com Parket frá Austurríki

www.FBhout.nl parket frá Hollandi, einkaumboð á Íslandi.

 

Hugsaðu um gólfið þitt

Lakkað gólf þarfnast minna viðhalds en það olíuborna og oftast þarf ekki að hugsa um að endurlakka fyrr en eftir u.þ.b. fimm til tíu ár í heimahúsum en mun oftar á dansgólf eða gólf á verslunum eða skrifstofum. Olíuborið gólf þarf hinsvegar meira viðhald og þarf oftast að endurolíubera á hálfs til tveggja ára fresti.

Getum við hjálpað þér?

Hafðu samband við okkur í síma, við getum svarað öllum spurningum um parket.
567 7777

892 8810